Fara beint í efni
🎃 HALLOWEEN TILBOÐ! 20% AF ÖLLU – AÐEINS UM HELGINA 🔥🎃 HALLOWEEN TILBOÐ! 20% AF ÖLLU

Skilmálar

Skilmálar

Velkomin á Pizzaofnar.is! Hér eru helstu atriðin í viðskiptaskilmálum okkar. Gildandi skilmálar í heild sinni eru á eftirfarandi síðum:

Seljandi

Pizzaofnar.is er rekin af Vitta ehf.
Kennitala: 490184-1559
VSK-númer: 47650
Heimilisfang félagsins: Lambasel 12, 109 Reykjavík
Afgreiðsla og verslun: Tónahvarf 10, 203 Kópavogur
Sími: 519 7711
Netfang: pizzaofnar@pizzaofnar.is

Verð og greiðsla

Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður og heildarverð koma fram í greiðsluferlinu áður en þú staðfestir pöntun. Í netverslun er hægt að greiða með þeim greiðsluleiðum sem birtast í greiðsluferlinu, meðal annars greiðslukorti, Netgíró, Pei, bankamillifærslu og gjafakorti Pizzaofnar.is.

Afhending

Þú getur fengið pöntunina senda með Dropp eða Póstinum, stærri vörur eftir atvikum með Flytjanda, eða sótt hana í afgreiðslu okkar að Tónahvarfi 10. Pantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag. Pizzaofnar.is ber áhættuna af vörunni þar til þú hefur tekið við henni. Ef sending týnist eða skemmist í flutningi leysum við málið.

Skil og skipti

  • 14 dagar með endurgreiðslu: Við netkaup hefur þú lögbundinn rétt til að falla frá kaupum innan 14 daga frá móttöku vöru og fá endurgreitt.
  • 30 dagar gegn inneign: Pizzaofnar.is býður skilarétt í samtals 30 daga frá móttöku vöru gegn inneign, ef varan er ónotuð og í upprunalegu ástandi og umbúðum. Inneign hefur engan gildistíma og gildir bæði í afgreiðslu okkar og netverslun.
  • Útsöluvörur: Merktum útsöluvörum er hvorki hægt að skila gegn inneign né skipta. Lögbundinn 14 daga réttur við netkaup og réttur vegna galla gilda þó áfram.
  • Gallaðar eða rangar vörur: Um þær gilda lög um neytendakaup. Pizzaofnar.is ber kostnað vegna gallaðrar eða rangrar vöru.
  • Framleiðendaábyrgð: Allt að 5 ára ábyrgð á Ooni við skráningu vörunnar hjá Ooni, til viðbótar við lögbundinn rétt.

Vörum er skilað í afgreiðslu okkar að Tónahvarfi 10. Nánar um skil og endurgreiðslur í skila- og endurgreiðslustefnu.

Persónuupplýsingar

Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu Pizzaofnar.is.

Spurningar

Hafðu samband á pizzaofnar@pizzaofnar.is, í síma 519 7711 eða í afgreiðslu okkar að Tónahvarfi 10, 203 Kópavogi.

EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR