Við hjá Pizzaofnar.is viljum að þú sért ánægð(ur) með kaupin. Hér er yfirlit yfir skil og endurgreiðslur. Ítarlegar upplýsingar eru í skila- og endurgreiðslustefnu Pizzaofnar.is.
14 daga réttur til að falla frá netkaupum
- Við netkaup hefur þú 14 daga frá móttöku vöru til að tilkynna okkur að þú fallir frá kaupunum, án þess að tilgreina ástæðu.
- Sendu tilkynningu á pizzaofnar@pizzaofnar.is. Eftir það hefur þú 14 daga til að skila vörunni.
- Þú mátt skoða vöruna eins og nauðsynlegt er til að kanna eiginleika hennar. Opnaðar umbúðir einar og sér útiloka ekki réttinn.
- Við endurgreiðum innan 14 daga með sama greiðslumiðli og notaður var við kaupin. Ef fallið er frá allri pöntuninni er upphaflegur sendingarkostnaður einnig endurgreiddur, miðað við ódýrasta staðlaða afhendingarmátann.
- Við beiðni um endurgreiðslu þarf að framvísa kvittun, pöntunarstaðfestingu eða annarri fullnægjandi sönnun fyrir kaupunum hjá Pizzaofnar.is.
30 daga skilaréttur gegn inneign
- Pizzaofnar.is býður skilarétt í samtals 30 daga frá móttöku vöru gegn inneign. Fyrstu 14 dagarnir eru hluti af þessum 30 dögum.
- Varan og umbúðir þurfa að vera í upprunalegu ástandi, varan ónotuð og óskemmd, og allir hlutar, fylgihlutir, leiðbeiningar og merkingar þurfa að fylgja.
- Inneignin miðast við greitt kaupverð að teknu tilliti til afsláttar. Hún hefur engan gildistíma og gildir bæði í afgreiðslu okkar og netverslun.
Útsöluvörur
Merktum útsöluvörum er hvorki hægt að skila gegn inneign né skipta. Lögbundinn 14 daga réttur við netkaup og réttur vegna galla gilda þó einnig um útsöluvörur.
Gallaðar, skemmdar eða rangar vörur
- Hafðu samband á pizzaofnar@pizzaofnar.is eins fljótt og auðið er eftir að galli kemur í ljós.
- Um gallaðar vörur gilda lög um neytendakaup. Almennur kvörtunarfrestur er tvö ár frá móttöku vöru.
- Pizzaofnar.is ber allan kostnað af úrbótum, nýrri vöru og sendingum vegna gallaðrar eða rangrar vöru.
Hvernig skila ég vöru?
Vörum er skilað í afgreiðslu okkar að Tónahvarfi 10, 203 Kópavogi, á opnunartíma. Ef þú átt ekki kost á að koma í afgreiðsluna skaltu hafa samband á pizzaofnar@pizzaofnar.is og við leiðbeinum þér. Ef þú endursendir vöru berð þú beinan kostnað af endursendingunni, nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.