Sleppa
Stjörnu-Pizza

Stjörnu-Pizza

Föstudagsveisla fyrir alla fjölskylduna

Hvað er betra en rjúkandi heit margaríta? Jú rjúkandi heit stjörnu margaríta! Þessi skemmtilega og frumlega uppskrift kemur beint frá Ooni.
Hráefni

280g Pizza deig
½ Bolli (100g) mozzarella ostur, rifinn
5 msk Pizza sósa (see note below)
50g Ferskur mozzarella ostur, rifinn í litla bita
1 msk Parmesan ostur, rifinn
2 Blöð af basilíku, rifin

Aðferð
Undirbúðu pizzadeigið þitt. Ef þig vantar uppskrift af pizzadeigi þá getur þú fundið hana hér. Gerðu pizzasósuna klára, við mælum með að þú bætir við hvítlauki og salt í sósuna. Þú getur fundið uppskrift af klassískri pizzasósu hér.
Kveiktu á Uuni Pro, Uuni 3 eða Ooni Koda ofninum þínum og miðaðu við 450˚C. Þú getur athugað hitastig ofnsins með Helect hitamælinum okkar.


Settu hveiti á spaðann þinn, flettu deigið út í 12" pizzu og legðu það á spaðann þinn. Skerðu sirka 5cm inn í degið þitt (allan hringinn) átta sinnum, allan hringinn (sjá myndband). Fylltu svo hvern hluta af pizzusósu og rifnum mozzarella osti.
Passaðu að setja ekki of mikinn ost inn í hvern hluta. Taktu varlega í sitt hvort hornið brjóttu upp á það þannig að endarnir mætast í miðjunni og mynda þríhyrning. Gerðu þetta við alla hlutana sem þú varst búin að skera þar til þú ert komin með átta arma stjörnu.
Settu pizzasósu og mozzarella ost á pizzuna sjálfa. Skelltu pizzunni inn í ofninn þinn og mundu að snúa henni reglulega. Settu svo basilíkuna á pizzuna þegar þú hefur tekið hana úr ofninum.
 
Gleðilegan föstudag!
Skoða fyrri Pizza með beikoni, spínati og tómötum
Næsta Avocado Pizza (með beikoni, fetaosti og mozzarella)