Sleppa
Avocado Pizza (með beikoni, fetaosti og mozzarella)

Avocado Pizza (með beikoni, fetaosti og mozzarella)

Þessi uppskrift kemur beint frá Ooni teyminu en það er enginn annar en Ben Stirling sem á heiðurinn á þessari uppskrift. Stirling kallar þessa guðdómlegu pizzu „The Millennial Pizza“ en hún er bæði stökk, sterk og rjómakennd! Mmm.. Þú getur séð myndbandið hans Ben Stirling hér fyrir neðan:

Hráefni (fyrir eina 12” pizzu)
160g Pizzadeig
4 msk Pizzasósa
40g Skorið beikon (eða beikonkurl)
40g Mozzarella ostur, rifinn í litla bita
40g Feta ostur
1 Avocado, stappað
Sriracha chilli sósa (eða önnur sterk sósa)

Aðferð
Undirbúðu pizzadeigið þitt. Við mælum með að þú notir 160g af deigi fyrir eina 12" pizzu. Ef þig vantar uppskrift af pizzadeigi þá getur þú fundið hana hér. Gerðu pizzasósuna klára, við mælum með að þú bætir við hvítlauki og salt í sósuna. Þú getur fundið uppskrift af klassískri pizzasósu hér.

Kveiktu á ofninum þínum og miðaðu við að setja pizzuna inn þegar pizzasteininn er orðinn 300˚C. Þú getur athugað hitastig ofnsins með Helect hitamælinum okkar.


Steiktu beikonið á pönnu (þú getur t.d. notað Uuni Sizzler pönnuna). Steiktu beikonið í rúmar 5 mínútur, eða þar til það er orðið stökkt. 

Settu hveiti á spaðann þinn, flettu deigið út og legðu það á spaðann. Settu svo pizzasósu, mozzarella og beikon á pizzadeigið. Settu svo pizzuna inn þegar ofninn er orðinn 500˚C. Ekki gleyma að snúa pizzunni reglulega á meðan hún er í ofninum.

Taktu pizzuna úr ofninum þegar hún er tilbúin og settu á hana avocado, fetaost og smá sriracha chilli sósu.

Verði þér að góðu! 

Skoða fyrri Stjörnu-Pizza
Næsta Klassísk Pizzasósa