Skip to content
Pizza með beikoni, spínati og tómötum

Pizza með beikoni, spínati og tómötum

Föstudagur? Föstudagur! Þessi geggjaða uppskrift kemur frá Chris Macartney


Hráefni

Fyrir eina 12” pizzu

Hvítlauksolían:
* Dugar fyrir 4-6 12” pizzur
18 hvítlauksrif, án hýðis
235g ólífu olía
½ msk sítrónusafi
1 msk salt
1 msk svartur pipar
1 msk rauð paprika, skorin í mjög litla bita
2 msk oregano

Beikonið:
192g beikon bitar
1 msk melassi (e. molasses)
½ msk brin sykur
1 msk salt

Pizzan:
160g klassískt pizza deig 
3 msk hvítlauksolía
110g mozzarella, rifinn
120g spínat
110g beikon bitar, sykurbrúnaðir (sjá fyrir neðan)
110g tómatar, skornir 


Aðferð
Undirbúðu pizzadeigið þitt. Við mælum með að þú notir 160g af deigi fyrir eina 12" pizzu. Ef þig vantar uppskrift af pizzadeigi þá getur þú fundið hana hér. 

Kveiktu á ofninum þínum og miðaðu við að setja pizzuna inn þegar pizzasteininn er orðinn 175˚C. Þú getur athugað hitastig ofnsins með Helect hitamælinum okkar.

Steiktu hvítlauksrifin á pönnu upp úr olífu olíu í sirka 15-20 mínútur, passaðu að rifin brenni ekki. Hvítlauksrifin ættu að vera ljósbrún og mjúk. Settu hvítlauksrifin í blandara og bættu við 2-3 ferskum hvítlauksrifjum, sítrónusafa, salti, svörtum pipar, rauðri papriku og oregano. Blandaðu hráefnunum vel saman. 

Hækkaðu hitann í ofninum upp í 500˚C. Blandaðu beikoninu, melassan, sykurinn og saltið saman í skál. Steiktu svo beikonið á pönnu í 5 mínútur eða þar til það er næstum fulleldað.

Settu hveiti á spaðann þinn, flettu deigið út og legðu það á spaðann. Bættu við smá olíu á pizzuna og dreifðu henni vel. Settu svo mozzarella ostinn, spínatið, sykurbrúnaða beikonið og tómata á pizzuna og skelltu henni inn í ofn. 

Ekki gleyma að snúa pizzunni reglulega. Taktu svo pizzuna út og bættu smá salti og pipari á pizzuna.

Previous article Einfalt pizzadeig
Next article Stjörnu-Pizza