Fara í efni
Kanilsnúðar úr pizzadeigi

Kanilsnúðar úr pizzadeigi

Notaðu klassískt pizzadeig til að baka þessa einföldu kanilsnúða í steypujárnspönnu (skillet).

Hráefni

  • 1 kg klassískt pizzadeig
  • 200 g smjör, mjúkt
  • 3 tsk kanill
  • 100 g strásykur

Glassúr

  • 200 g flórsykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 3 msk vatn

Aðferð

  1. Útbúðu pizzadeigið með fyrirvara og láttu hefa sig.
  2. Blandaðu kanil og sykri saman í skál.
  3. Kveiktu á ofninum og hitaðu skillet-pönnuna í honum í nokkrar mínútur.
  4. Settu deigið á létt hveitistráð borð og fletjið út. Smyrðu með mjúku smjöri og stráðu kanilsykrinum yfir.
  5. Rúllaðu deiginu upp í langa lengju (með smjörið innan í) og skerðu í snúða. Raðaðu í pönnuna.
  6. Bakaðu í 5–7 mín. uns snúðarnir eru lyftir og gullnir.
  7. Útbúðu glassúrinn á meðan (flórsykur, vanilla, vatn) og dreyptu yfir volga snúðana. Berðu fram strax!

Aðlagað eftir uppskrift frá Ooni.

Næsta grein Glutenlaust Pizzadeig